Almennar upplýsingar um Vinnuskólann

Skráning fyrir vinnuskólann 2024 er LOKUÐ!

Fyrir foreldra / forráðamenn

Vinnutímabil 2024

Vinnutímabil sumarsins 2024 verður frá 4.júní til 28.júní, svo aftur 7.ágúst til 16.ágúst. Eða samtals 6.vikur. 

04. júní / Fræðsludagur á vegum Bungubrekku

05.- 07. júní / Hefðbundin vinna á viðeigandi starfsstöðum

10.- 14. júní / Hefðbundin vinna á viðeigandi starfsstöðum

18.- 21. júní / Hefðbundin vinna á viðeigandi starfsstöðum

24.- 28. júní / Hefðbundin vinna á viðeigandi starfsstöðum

22. júlí.- 05. ágúst / SUMARFRÍ VINNUSKÓLANS

07. ágúst / Fræðsludagur á vegum Bungubrekku

08.- 9. ágúst / Hefðbundin vinna á viðeigandi starfsstöðum

12.- 16. ágúst / Hefðbundin vinna á viðeigandi starfsstöðum


Skráning í Vinnuskólann

Allir umsóknir fara í gegnum innskráningavef vinnuskólans inná heimasíðu Bungubrekku. Mikilvægt er að allar upplýsingar sem beðið er um komi fram við umsókn í vinnuna. 

Unglingar með ofnæmi

Á hverju ári koma margir unglinga með ýmis konar ofnæmi í Vinnuskólann. Mikilvægt er að foreldrar láti vita að unglingurinn þeirra sé með ofnæmi. Hægt er að láta vita með því að senda tölvupóst á bungubrekka@hvg.is.

Fræðsla

Búið er að taka frá tvo daga sem verða tileinkaðir fræðslu. 

Stefnt er á að fyrri dagurinn (4.júní) feli í sér almenna fræðslu, verkreglur og fyrirkomulag vinnuskólans. Þar verður rætt um réttindi þeirra og skyldur, farið yfir verklýsingar og samskipti við vinnufélaga.

Stefnt er á að seinni dagurinn (7.ágúst) feli í sér að fá utanaðkomandi fræðslu.

Leyfi og veikindi

Foreldrar verða að tilkynna forföll og veikindi barna sinna með því að senda tölvupóst á bungubrekka@hvg.is. Einungis er tekið við tilkynningum frá foreldrum eða forráðamönnum. Veikindi ber að tilkynna áður en vinna hefst dag hvern. Nauðsynlegt er að tilkynna veikindi alla daga sem þau standa yfir.

Veikindi teljast sem tapaðar vinnustundir og ekki er hægt að vinna þær upp.

Yfirmaður vinnuskólans

Frístundamiðstöðin Bungubrekka sér um vinnuskólann. Ingimar Guðmundsson er forstöðumaður og er hægt að nálgast hann í gegnum tölvupóstfangið ingimar@hvg.is

Fyrir unglinga

Af hverju ætti ég að sækja um starf í Vinnuskólanum?

Þátttaka í Vinnuskólanum er kjörið tækifæri fyrir unglinga til þess að öðlast reynslu af því að vinna sér inn laun á hvetjandi og jákvæðan hátt. Þar gefst unglingum færi á að taka þátt í að snyrta og hirða bæinn sinn, kynnast nýjum félögum og læra heilmikið um umhverfismál, mannleg samskipti og virðingu gagnvart atvinnu. 

Einnig er þetta tilvalið tækifæri fyrir unglingana okkar til þess að takast á við margvísleg örvandi viðfangsefni. Að skrá sig í vinnuskólann er einnig tilvalið tækifæri til þess að prófa einhverjar af þeim mismunandi vinnum sem við bjóðum upp á. Dæmi um vinnur sem eru í boði er vinna á sumarnámskeiðum Bungubrekku eða á leikskólum bæjarins.

Hvað er ég að vinna lengi?

Vinnutími vinnuskólans er eins og hefur verið síðustu ár, eða 9:30-12:00 og 13:00-15:30. Allir fá matarhlé frá 12:00-13:00.

Hvar get ég unnið?

Vinnuskólinn býður nemendum upp á vinnu hjá félögum og stofnunum í sveitarfélaginu. 

Þegar sótt er um nám hjá Vinnuskólanum er hægt að velja um þá staði sem helst koma til greina að mati nemanda.

Þó nemandi haki við og óski eftir að komast að inn á stofnunum er ekki hægt að treysta á að það gangi eftir. Mikil aðsókn er í að komast inn á stofnanir, og því ekki hægt að koma öllum að sem vilja.

Hvert á ég að mæta?

Höfuðstöðvar vinnuskólans sumarið 2023 verður Bungubrekka og verður alltaf hægt að leita þangað með allar spurningar. Allir nemendur vinnuskólans mæta í Bungubrekku dagana 5.júní og 8.ágúst, annars mæta allir á sín úthlutuðu svæði.

Get ég skipt um hóp?

Engar breytingar eru gerðar á hópum fyrstu dagana. Best er að rugla ekki of mikið í flokkaskipan, en í sérstökum tilfellum geta flokkstjóri og yfirflokkstjóri skoðað málið með hverjum og einum nemenda.

Má ég nota tóbak í vinnunni?

Vinnuskóli Hveragerðis er vímulaus vinnustaður, það á við um tóbak, nikótín púða, koffín sem og áfengi. 

Laun, hvað er það?

Hvenær fæ ég útborgað?

Útborgun er á tveggja vikna fresti.

Hvað er þetta skattkort og hvað á ég að gera við það?
Allir launþegar á Íslandi sem eiga hér fasta búsetu og hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á svokölluðum persónuafslætti og er skattkortið til þess gert að halda utan um það. Árið 2016 voru öll skattkort gerð rafræn. Ekki er þörf á að skila inn skattkorti ef óskað er eftir að nota skattkort á umsóknarvef. Ef umsækjandi telur sig þurfa að nota ónýttan persónuafslátt frá fyrri mánuðum getur hann sent beiðni um slíkt á launafulltrúa Hveragerðisbæjar og þarf þá staðfesting af þjónustuvef RSK að fylgja með.

Þarf ég að borga hluta af laununum mínum í lífeyrissjóð?
Börn byrja að greiða í lífeyrissjóð næstu mánaðamót eftir 16 ára afmælisdaginn.

Hvert fara launin mín?
Launin eru lögð inn á bankareikning unglinganna og þurfa því allar bankaupplýsingar að fylgja umsókn. Aðeins er hægt að nota bankareikning unglingsins.

Laun og vinnutími 2024
Fæðingarár - Laun (Tímakaup)