Efnisyfirlit
Sumardagatal Bungubrekku 2025
Sumarnámskeið fyrir börn fædd 2019, 2018 & 2017
Skráning opnar 19. maí
Sumarnámskeið fyrir börn fædd 2016 & 2015
Skráning opnar 19. maí
Sumarnámskeið fyrir börn fædd 2014, 2013 & 2012
Skráning opnar 26. maí
Vinnuskólinn fyrir unglinga fædda 2011, 2010 og 2009
Skráning lokar 23.maí
Almennar upplýsingar - Sumarstarf bungubrekku 2025
Finnur þú ekki upplýsingarnar sem þú ert að leita af á þessari síðu? Sendu okkur fyrirspurn á bungubrekka@hvg.is
Smelltu HÉR til þess að opna bæklinginn ef það gengur erfiðlega að fletta / skoða hér fyrir ofan.
Við viljum einnig benda á að Listasafn Árnesinga býður uppá myndlistarnámskeið fyrir unglinga.
Hvenær: 7.–11. júlí 2025
Hvar: Listasafn Árnesinga, Hveragerði
Fyrir unglinga á aldrinum 13–16 ára (2012, 2011, 2010, 2009)
Skráning: fraedsla@listasafnarnesinga.is
Taktu þátt í skapandi og fjölbreyttu 5 daga myndlistarnámskeiði þar sem þú færð tækifæri til að vinna með ólíka miðla og aðferðir undir handleiðslu faglærðra listamanna. Námskeiðið sameinar skemmtilega tilraunavinnu, skapandi hugsun og tæknilega færni. Meðal aðferða sem verða kynntar eru m.a. ljósmynda gel-þrykk, þurrnál á tetrapak (prenttækni), marbling (fljótandi litir á vatni), ýmsar æfingar í teikningu, blandaðir miðlar & textíltækni.
Markmiðið er að styðja við ungt listafólk í að þróa sinn eigin stíl, fá innblástur og auka sjálfstraust í listsköpun. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem og þeim sem hafa reynslu. Leiðbeinendur eru Martyna Hopsa, textíllistakona frá Póllandi og starfsmaður safnsins og Alda Rose Cartwright, myndlistarmaður og verkefnastjóri fræðslu safnsins.
Allur efniviður innifalinn – takmarkað pláss!
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á fraedsla@listasafnarnesinga.is
(ATH námskeiðið stendur öllum börnum til boða óháð búsetu!)