SAMFÉS

Landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi

Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól er aðildarfélag SAMFÉS sem mótar starf Skjálftaskjóls að miklu leyti.

En hvað er Samfés og hvaða viðburði býður Samfés upp á?

Um Samfés

Samfés, Landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, eru frjáls félagasamtök og starfa í þágu ungs fólks um land allt.

Samfés vinnur að því að auka samskipti og samvinnu félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á landinu og stuðla að eflingu fagmenntunar starfsfólks á vettvangi með ráðstefnum, námskeiðum og viðburðum sem eru mikilvægur hluti símenntunar starfsfólks.

Samfés styður einnig við allt það öfluga forvarnarstarf sem fer fram í félagsmiðstöðvum og ungmennahúsum landsins með því að bjóða upp á jafningjafræðslu og halda viðburði fyrir ungmenni á aldrinum 10-25 ára. Með skipulagningu fjölbreyttra árlegra viðburða og verkefna fyrir starfsfólk og ungmenni á landsvísu viljum við leggja áherslu á að ná til fjölbreytts hóps ungmenna sem hafa tækifæri til að taka þátt á eigin forsendum, þeim að kostnaðarlausu.

Viðburðir Samfés

Smellið á viðburðina til þess lesa meira um alla viðburði Samfés á heimasíðu samtakana, www.samfes.is