Sjúkást er verkefni á vegum Stígamóta um heilbrigð, óheilbrigð og ofbeldissambönd ungmenna. Verkefninu er ætlað að vera forvörn gegn ofbeldi með því að fræða ungt fólk um mörk og samþykki, og hefur verkefnið skapað sér sess í forvarnastarfi skóla og félagsmiðstöðva. Á hverju ári senda Stígamót plaköt og annað efni á alla framhaldsskóla og félagsmiðstöðvar landsins, með ósk um að það verði kynnt fyrir hverjum nemendahópi.
Yfirskrift herferðarinnar í ár er Ertu í suði? og viljum við auka skilning á hugtakinu suð. Sérstök athygli er vakin á því hvernig suð getur birst og stuðlað að markaleysi og ofbeldi, en almennt viljum við að fólk íhugi hvenær það er komið yfir ákveðin mörk, hvernig það óskar eftir og veitir samþykki, og hvernig það getur sett mörk.
Það er skilyrði að sitja þessa fræslu fyrir þá sem að ætla að fara á SamFest 2026. Skjálftaskjól mun bjóða uppá tvær dagsetningar þar sem hægt er að sitja fræðsluna, 28. og 30. apríl. Í ár munu Hildigunnur Sigvaldadóttir og Kristín Áslaugardóttir sjá um fræðsluna.
Frekari upplýsingar er hægt að finna inná heimasíðu sjúkást.