Frístundamiðstöðin Bungubrekka
Frístundamiðstöðin Bungubrekka hefur yfirumsjón á skipulagningu og rekstri á því frístundastarfi sem sveitarfélagið ber ábyrgð á og býður upp á.
Frístundamiðstöðin Bungubrekka var stofnuð 2017 eftir að starfsemi frístundaheimilisins Brekkubæ (þá Skólasel) og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Skjálftaskjóls voru færðar í sama húsnæði. Út frá því fékk húsið Bungubrekka í höfuðið á samnefndri lóð hússins.
Frístundamiðstöðin Bungubrekka hefur síðan þá færst yfir í það er vera huglægt starf frekar en að vera einungis tengt við húsnæðið sjálft. Bungubrekka er regnhlífarhugtak sem á við fjölbreytt starf stofnunarinnar óháð staðsetningu.
Frístundamiðstöðin Bungubrekka tilheyrir fræðslu- og velferðarsviði Hveragerðis.
Starfseiningar innan Bungubrekku
Frístundaheimilið Brekkubær
Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól
Rafíþróttaklúbburinn C3LL4R
Sumarnámskeið Bungubrekku
Vinnuskóli Hveragerðisbæjar
Tímalína og saga starfsins
1995
Félagsmiðstöðin Skjálftaskjól er stofnuð 1995/1996 í kjallaranum undir íþróttahúsinu við Skólamörk.
2000
Skólasel er stofnað í Hveragerði (seinna frístundaheimilið Skólasel)
2017
Frístundamiðstöðin Bungubrekka varð til árið 2017 þegar Félagsmiðstöðin og Frístundaheimilið fluttu í sameiginlegt húsnæði.
Til að byrja með var aðeins húsnæðið kallað Bungubrekka og notkun á orðinu Frístundamiðstöð ekki til staðar.
2020
Notkun á orðinu Frístundamiðstöð festist í sessi og Frístundamiðstöðin Bungubrekka orðin sú stofnun sem heldur utan um frístundastarf sveitarfélagsins.
Lógó Bungubrekku er hannað og tekið í notkun.
2021
Frístundamiðstöðin Bungubrekka tekur yfir sumarnámskeið Hveragerðisbæjar fyrir börn og unglinga og heldur utan um rekstur og skipulag.
2023
Frístundaheimilið Brekkubær verður til í staðinn fyrir Skólasel. Nokkrum árum áður var talað um Frístundaheimilið Skólasel og Frístundaskólann í Hveragerði.
Frístundamiðstöðin Bungubrekka tekur yfir Vinnuskóla Hveragerðisbæjar og heldur utan um allt skipulag vinnuskólans.
Rafíþróttaklúbburinn C3LL4R er stofnaður og í fyrsta sinn er boðið upp á skipulagt rafíþróttastarf í sveitarfélaginu.